Rangárþing eystra hefur blásið til samkeppni um nafn á nýja leikskólann sem nú er í byggingu við Vallarbraut 7 á Hvolsvelli.
Nafnasamkeppnin er öllum opin og íbúar eru hvattir til að taka þátt í keppninni en tillögur að nöfnum má senda inn hér.
Skilafrestur er til og með 6. október og mun sérstök dómnefnd fara yfir innsendar tillögur og verðlaun verða veitt fyrir þá tillögu sem að dómnefndin velur.