Neyðarlínan fékk tilkynningu um eld í iðnaðarhúsnæði við Eyraveg á Selfossi rétt fyrir klukkan 4 í morgun. Slökkvistarfi lauk á sjöunda tímanum.
„Það var talsverður eldur í öðrum enda hússins þegar við komum á staðinn, en hann hafði ekki breiðst á milli rýma,“ sagði Hafsteinn Davíðsson, settur varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, í samtali við sunnlenska.is.
Húsið var mannlaust þegar eldurinn kom upp en starfsmaður í húsinu fékk boð frá viðvörunarkerfi í síma sinn og tilkynnti það til Neyðarlínunnar.
Að sögn Hafsteins var allur tiltækur mannskapur BÁ á Selfossi kallaður út, alls 23 slökkviliðsmenn og gekk slökkvistarf vel fyrir sig.
„Já, þetta gekk vel miðað við aðstæður. Það þurfti að reykræsta allt húsið og við rifum aðeins frá klæðningu utan húss til að ganga úr skugga um að þar væri ekki glóð. En það eru miklar skemmdir innanhúss, sérstaklega af völdum reyks,“ bætti Hafsteinn við.
Lögreglan á Suðurlandi fékk vettvanginn afhentan klukkan 6:20 í morgun og rannsakar eldsupptök í framhaldinu.

