Miklar skemmdir á sundlauginni á Stokkseyri

Sundlaugakarið er mjög illa farið eftir 31 ára notkun. Ljósmynd/Árborg

Í ljós hefur komið að sundlaugakarið í sundlaug Stokkseyrar er mjög illa farið eftir 31 ára notkun.

Sveitarfélagið Árborg lokaði sundlauginni þann 1. nóvember í sparnaðarskyni og á lokunartímanum átti að vinna að viðhaldi laugarinnar.

Nú er ljóst að fara þarf í umfangsmiklar viðgerðir á kari sundlaugarinnar á Stokkseyri, þar sem skipta þarf um allar hliðar á lauginni ásamt botni og dúk. Í tilkynningu frá Árborg segir að framkvæmdir séu hafnar en vegna umfangs skemmdanna er óljóst hvenær þeim lýkur.

Einnig verður farið í að mála potta og hugað verður að viðhaldi á öðrum þáttum á lóð og húsi sundlaugarinnar.

Skipta þarf um allar hliðar á lauginni ásamt botni og dúk. Ljósmynd/Árborg
Fyrri grein200 nýjar íbúðir á næstu tíu árum í Mýrdalshreppi
Næsta greinÞór vann spennandi nágrannaslag