Metstyrkur Lindex í baráttunni gegn krabbameini hjá konum

Ljósmynd/Lindex

Í krafti viðskiptavina hefur Lindex lánast að setja met í stuðningi sínum við Krabbameinsfélag Íslands með sölu á Bleiku slaufunni, brjóstahöldurum og fjölnota pokum bleiku pokarnir eru nú að mestu uppseldir.

Styrkur sem rennur til Krabbameinsfélags Íslands og samanstendur af sölu Bleiku Slaufunnar, fjölnota pokanna og sölu á brjóstahöldurum Lindex er því sérlega veglegur eða rúmlega 7 milljónir króna. Þetta er hæsti styrkur sem Lindex hefur veitt til þessa í baráttu Krabbameinsfélag Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Árlega greinast að meðaltali 916 konur með krabbamein á Íslandi, langflestar með brjóstakrabbamein, 260 talsins.

Baráttan stendur okkur nærri
„Sameiginleg barátta okkar sem nú spannar meira en áratug stendur okkur mjög nærri og höfum við í krafti viðskiptavina okkar gert þessa baráttu að okkar. Við í Lindex höfum þetta sem lykilatriði í vinnu okkar á hverju hausti en stuðningur við starf Krabbameinsfélags Íslands snertir okkur, sem og vel flesta með einum eða öðrum hætti. Við erum við því stolt og um leið þakklát að geta státað af þessum árangri í krafti okkar frábæru viðskiptavina og samstarfsaðila,“ segir Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, umboðsaðili Lindex á Íslandi.

Frá upphafi hafa safnast um 34 milljónir króna fyrir tilstilli viðskiptavina Lindex til baráttunnar gegn brjóstakrabbameini.

Ómetanlegt samstarf
„Að eiga að samstarfsaðila eins og Lindex er einfaldlega ómetanlegt. Samstarfið hefur vaxið og dafnað og er fjölbreyttara en víðast hvar sem er ljóst að viðskiptavinirnir kunna að meta. Lindex er ekki bara einn af öflugustu söluaðilum Bleiku slaufunnar heldur framleiðir einnig eigin vörur til styrktar átakinu,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands.

„Starf Krabbameinsfélagsins er rekið fyrir styrki frá almenningi og fyrirtækjum og Lindex og viðskiptavinir verslananna geta sannarlega verið stoltir af hlutdeild sinni í því. Málið er einfalt, til að ná árangri þurfa allir að leggjast á eitt. Kærar þakkir Lindex og viðskiptavinir,“ bætir Halla við.

Lóa og Albert í Lindex. Ljósmynd/Aðsend
Fyrri greinJóns Arasonar minnst í Skálholti í kvöld
Næsta greinSunnlensk ungmenni blómstra í Skjálftanum