Melta fékk umhverfisviðurkenningu Rangárþings ytra

(F.v.) Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri, Hrefna Björg Gylfadóttir, Björk Brynjarsdóttir og Julia Brennar frá Meltu og Magnús H. Jóhannsson, formaður umhverfis-, samgöngu- og hálendisnefndar. Ljósmynd/Rangárþing ytra

Í tilefni af Degi íslenskrar náttúru í gær var Meltu ehf. veitt umhverfisviðurkenning Rangárþings ytra árið 2023.

Melta, áður Jarðgerðarfélagið, hefur unnið með Sorpstöð Rangárvallasýslu í nokkur ár við að þróa nýja aðferð við meðhöndlun og vinnslu lífræns heimilisúrgangs. Aðferðin byggir á gerjun efnisins við súrefnisfirrtar aðstæður með svokallaðri Bokashi-aðferð, sem er talsvert ólík hefðbundinni moltugerð.

Björk Brynjarsdóttir og Julia M. Brenner hafa leitt þessa vinnu, en fyrir utan aðferðina sjálfa, er markmið þeirra að fólk hugsi betur um þessa auðlind sem lífrænn heimilisúrgangur er og stuðli að heilbrigðri nýtingu efnisins í anda hringrásarhagkerfisins t.d. til uppgræðslu.

Í tilkynningu frá Rangárþingi ytra segir að öll samskipti um þróun verkefnisins og samstarf við íbúa hafi verið einstaklega jákvæð og með viðurkenningunni fylgja vonir um áframhaldandi samstarf og íslenskri náttúru til heilla.

Fyrri greinJÁVERK rafvæðir bílaflotann
Næsta greinÚlfur náði frábærum árangri á Englandi