Matland segir söguna á bak við framleiðsluna

Grænmetiskassarnir frá Matlandi eru sendir til viðskiptavina á fimmtudögum. Þeir eru síbreytilegir eftir því hvað er ferskast hverju sinni. Mynd / SFG

Matland er vefmiðill þar sem fjallað er um mat og matvælaframleiðslu út frá ýmsum sjónarhornum. Útgefandi Matlands rekur vefverslun samhliða miðlinum þar sem lögð er áhersla á að segja frá uppruna matvælanna og fólkinu sem framleiðir matinn okkar. Á Matlandi er meðal annars hægt að kaupa ferskt grænmeti, nauta- og hreindýrakjöt, aðalbláber úr Svarfaðardal, lambakjöt í heilum skrokkum og samsetta pakka með öllu sem þarf í íslenska kjötsúpu.

Vikulegir grænmetiskassar
Nýverið hóf Matland samstarf við nokkra garðyrkjubændur og Sölufélag garðyrkjumanna um vikulega grænmetiskassa sem seldir eru stakir eða í áskrift á vef Matlands. Í kassanum er alltaf það nýjasta og ferskasta sem er í boði á markaðnum hverju sinni, allt eftir uppskerutíma og áherslum. Ásamt því að bjóða hefðbundið grænmeti í kassanum er þar iðulega að finna sjaldgæfari tegundir sem ekki sjást reglulega í verslunum. Í næsta kassa er t.d. að finna íslenskan hvítlauk og smágulrætur frá Efri-Úlfsstöðum, kartöflusmælki og pak-choi salat frá Garðyrkjustöðinni Kinn.

Áskrifendur geta valið um að fá vikulega kassa, á tveggja vikna fresti eða mánaðarlega. Keyrt er út síðdegis á fimmtudögum og fram á kvöld til viðskiptavina sem kjósa heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu. Kaupendur utan þess fá grænmetiskassa Matlands afhenta á afgreiðslustöðum Samskipa um allt land.

Tjörvi Bjarnason er útgefandi Matlands og hefur síðustu mánuði unnið að uppbyggingu vefverslunar Matlands.

„Við finnum að það er mikill áhugi hjá neytendum að kaupa matvörur þar sem uppruninn er á tæru. Á Matlandi kynnum við framleiðendur sérstaklega og segjum frá hvernig varan verður til. Við erum í samstarfi við nokkra bændur sem við leggjum traust okkar á og mælum með. Þetta er ákaflega skemmtilegt samstarf og frá mörgu að segja. Allsstaðar leynast góðar sögur og það eru líka mikil verðmæti fólgin í því fyrir framleiðendur að segja frá hvað þeir leggja áherslu á í sínu starfi, segir Tjörvi.“

Tjörvi Bjarnason útgefandi Matlands segir að það sé mikill áhugi á meðal neytenda að vita meira um matinn sem er á boðstólum. Mynd / Matland

Samvinna við Pylsumeistarann
Matfélagið ehf., sem rekur Matland, er með útgefið starfsleyfi fyrir vefverslun með matvæli frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Helsti samstarfsaðili Matlands er Sigurður Haraldsson, kjötmeistari Íslands og eigandi Pylsumeistarans. Lager Matlands er í húsnæði hans í Kópavogi og vöruafhending fer fram í verslun Pylsumeistarans á Hrísateig í Reykjavík. Aðrir samstarfsaðilar eru m.a. sláturhúsið í Brákarey í Borgarnesi, Villt og alið á Hellu, Biobú, Sölufélag garðyrkjumanna og fjöldi bænda víða um land. Meiri upplýsingar um félagið og efni Matlands er að finna á vefnum www.matland.is.

Halla Sif Hölludóttir Svansdóttir er nýbyrjuð að búa og rekur garðyrkjustöðina Gróður á Hverabakka á Flúðum. Hún framleiðir m.a. tómata, kúrbít, blómkál og sellerí. Mynd / Matland
Bræðurnir Halldór og Agnar Ólafssynir rækta úrvalsnaut á bænum Tjörn á Mýrum í Hornafirði. Kjötið þeirra fæst á Matlandi. Mynd / Matland
Hörður Bender á Efri-Úlfsstöðum í Landeyjum ræktar hvítlauk og gulrætur sem verða í næsta grænmetiskassa Matlands. Mynd / Efri-Úlfsstaðir
Fyrri greinSkoða uppbyggingu íþróttamannvirkja á Stokkseyri
Næsta greinGul viðvörun: Norðan stormur á sunnudag