Markaðsstofa Suðurlands vinnur nú að þróun Söguslóða Suðurlands, verkefnis sem tengir saman sögu, menningu, náttúru og mannlíf svæðisins í heildstæða ferðaleið.
Á næstu vikum verða haldnar vinnustofur víðs vegar um Suðurland þangað sem boðið verður heimafólki, sveitarfélögum, söfnum, félagasamtökum, ferðaþjónustuaðilum og öðrum sem þekkja sitt svæði vel. Leitað verður að svarinu við þeirri spurningu hvaða sögur búa á svæðinu.
Fyrsta vinnustofan verður haldin á Eyrarbakka þann 10. nóvember og síðan í framhaldinu á Hellu, Kirkjubæjarklaustri, Laugarvatni, Vík, Vestmannaeyjum, Höfn og í Öræfum.
Á vinnustofunum verða kortlagðir sögustaðir, þjóðsögur, merkt fólk og atburðir, rædd möguleg þemu og skoðað hvernig hægt er að byggja upp áhugaverðar og sjálfbærar söguleiðir. Lokaafurð verkefnisins verður svo stafrænt kort, þemabundnar ferðaleiðir og aðgengilegur efnisbanki sem styður áframhaldandi uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu á Suðurlandi.
Með Söguslóðum Suðurlands eru gestir hvattir til að dvelja lengur á Suðurlandi, dreifa heimsóknum víðar um svæðið og auka sýnileika staða með ríka sögu og menningarlegt gildi. Verkefnið hlaut styrk úr Byggðaáætlun í gegnum SASS.

