Lokað undir Ingólfsfjalli á miðvikudags- og fimmtudagskvöld

Nú í haust er Samfylkingin að hleypa af stað samráði um atvinnu- og samgöngumál. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Næstkomandi miðvikudags- og fimmtudagskvöld, 1. og 2. júní er stefnt á að malbika báðar akreinar á Suðurlandvegi við Kögunarhól undir Ingólfsfjalli.

Suðurlandsvegi verður lokað á milli Hveragerðis og Biskuptungnabrautar frá kl. 19:00 til 6:00 að morgni 1.–2. júní og aftur 2.–3. júní. Hjáleiðir verða merktar um Eyrarbakkaveg og Þorlákshafnarveg.

Í tilkynningu frá Colas Ísland, sem sér um framkvæmdirnar, eru vegfarendur beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Fyrri greinSyngjandi kaffikvörn og dansgjörningur í kartöfluskemmu
Næsta greinGísella dúxaði með næst hæstu einkunn í sögu skólans