Alvarlegt umferðarslys við Reynisfjall

Frá vettvangi slyssins austan undir Reynisfjalli. sunnlenska.is/Sigurður Hjálmarsson

Alvarlegt umferðarslys varð á þjóðvegi 1 á þriðja tímanum í dag austan undir Reynisfjalli, á milli Grafarhóls og Selhryggs.

Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug áleiðis austur, til móts við sjúkrabíla sem fluttu slasaða af vettvangi.

Langar bílaraðir mynduðust beggja vegna slysstaðarins en vegurinn hefur verið opnaður á ný. Viðbragðsaðilar eru enn á vettvangi og eru vegfarendur beðnir um að sýna þeim tillitssemi. Slæmt veður er á vettvangi og færð tekin að spillast.

UPPFÆRT KL. 16:06

Fyrri greinNettó styrkir Sjóðinn góða og fleiri góðgerðarfélög
Næsta grein„Við erum ótrúlega spennt“