Lögreglan lýsir eftir Guðbrandi

Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Guðbrandi Ólafssyni. Síðast er vitað um ferðir hans í nágrenni við Selfoss seinni partinn í gær, 4. ágúst 2021 og var hann þá á bifreiðinni YB-720, sem er blá Kia Sorento.

Guðbrandur er klæddur í svartan jakka og bláar gallabuxur.

Þeir sem hafa orðið varir við bifreiðina YB-720 og geta gefið upplýsingar um ferðir Guðbrands eru beðnir um að láta lögregluna á Suðurlandi vita í síma 444 2000, á netfangið sudurland@logreglan.is eða í einkaskilaboðum á Facebook síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Fyrri grein161 í einangrun á Suðurlandi
Næsta greinSkólastarf Stekkjaskóla hefst í Bifröst