Ljósastýring á Markarfljótsbrú næstu vikurnar

Hringvegurinn við Markarfljót. Ljósmynd/Vegagerðin

Ljósastýring er á brúnni yfir Markarfljót þessa dagana vegna viðhaldsvinnu og verður svo næstu sex vikurnar.

Framkvæmdir hófust síðastliðinn mánudag og er áætlað að þær standi til 14. desember, ef veður leyfir. Umferð er stýrt framhjá framkvæmdarsvæðinu með umferðarljósum þar sem aðeins ein akrein er opin, þannig að búast má við smávægilegum umferðartöfum.

Hámarkshraði framhjá vinnusvæðinu hefur verið lækkaður í 30 km/klst og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát, virða merkingar og hraðatakmarkanir og gæta fyllsta öryggis við vinnusvæðið.

Fyrri greinPólskir menningardagar í Listasafni Árnesinga