Lítill munur á lægstu tilboðum

Gnúpverjavegur liggur þarna norðan við Árnes, meðfram Kálfá. Ljósmynd / Mats Wibe Lund

Verk og tækni ehf á Selfossi bauð lægst í endurbætur og klæðningu á Vorsabæjarvegi og Gnúpverjavegi sem Vegagerðin bauð út fyrir skömmu. Aðeins munaði 66.150 krónum á tveimur lægstu tilboðunum, eða 0,1%.

Þrjú tilboð bárust og voru þau öll undir áætluðum verktakakostnaði Vegagerðarinnar sem var 71,6 milljónir króna.

Verk og tækni bauð rétt tæpar 68 milljónir króna og Vörubifreiðastjórafélagið Mjölnir á Selfossi bauð rétt rúmar 68 milljónir króna í verkið. Borgarverk átti síðan hæsta tilboðið, rúmlega 69,1 milljón króna.

Um er að ræða útakstur styrktarlags, burðarlags og útlögn klæðningar á Vorsabæjarvegi á Skeiðum og Gnúpverjavegi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Verkinu á að vera lokið þann 1. september næstkomandi.

Fyrri greinArnór Logi framlengir á Selfossi
Næsta greinFjárhús í Mýrdalnum alelda á skömmum tíma