Lions gaf tvö hjartastuðtæki

Lionsklúbbur Hveragerðis afhenti nýverið tvö hjartastuðtæki sem verða til staðar í Hamarshöllinni og íþróttahúsinu Skólamörk.

Hjartastuðtækin eru sjálfvirk, auðveld í notkun og íslenskt tal leiðbeinir jafnvel óreyndasta notanda gegnum endurlífgunarferilinn.

Allir starfsmenn íþróttamannvirkja munu fá þjálfun um notkun tækjanna. Þetta er rausnarleg gjöf og veitir mikið öryggi þeirra sem heimsækja íþróttamannvirki bæjarins en fyrir nokkrum árum gaf Lionsklúbburinn Sundlauginni Laugaskarði slíkt tæki.

Rögnvaldur Pálmason afhenti Eyþóri H. Ólafssyni, formanni menningar-, íþrótta- og frístundanefndar hjartastuðtækin.

Fyrri greinArna Ír: Verslum í heimabyggð!
Næsta greinRafmagnaður sigur í framlengdum nágrannaslag