Líkfundur í Laxárdal í Nesjum

Í gær, þriðjudag, klukkan 16:11 barst tilkynning á lögreglustöðina á Höfn í Hornafirði, um líkfund í Laxárdal í Nesjum.

Lögreglumenn á Höfn fóru þegar á vettvang. Landhelgisgæslan lagði til þyrlu til að flytja rannsóknarlögreglumann frá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi, lögreglumenn úr Kennslanefnd ríkislögreglustjóra, rannsóknarlögreglumann frá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðisins og réttarlækni á staðinn. Ekki hefur verið borin kennsl á líkið.

Kennslanefnd hefur gefið út að líkið sé af ungum karlmanni um það bil 186 sentimetrar á hæð með ljóst axlasítt hár klætt í svarta strigaskó með hvítri stjörnu á hlið, dökkbláar íþróttabuxur og hettupeysu með áletrun að framan „QUICKSILVER“. Ætla má að maðurinn hafi látist fyrir einhverjum mánuðum síðan.

Málið er í rannsókn og ekkert hægt að segja til um á þessu stigi með hvaða hætti andlát mannsins bar að.

Lögreglan á Suðurlandi biðlar til allra þeirra sem gætu veitt upplýsingar um manninn að hringja inn í síma 842 4250.

Fyrri greinRagnarsmótið hefst í kvöld
Næsta greinHafnarframkvæmdir byrjaðar af krafti