Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út á fimmta tímanum í dag eftir að óttast var að maður hefði fallið í Ölfusá, skammt frá Ölfusárbrú á Selfossi.
Svo reyndist ekki vera, maðurinn fannst fljótlega á gangi á Selfossi heill á húfi. Þyrlan var þá komin á Selfoss og björgunarsveitir komnar með báta og jetski til leitar á ánni og leitarhundar komnir á svæðið.
Viðbragðið var því afturkallað. Samkvæmt heimildum sunnlenska.is fundust munir og fatnaður frá manninum á árbakkanum og var því óttast að hann hefði lent í ánni.

