Leikfélag Rangæinga fékk fyrsta styrkinn úr menningarsjóðnum

Við úthlutun f.v. Margrét Einarsdóttir, formaður ásamt stjórnarmönnunum Jóni Sigurðssyni og Gunnsteini Sigurðssyni.

Á Töðugjöldum um síðustu helgi var í fyrsta sinn úthlutað úr Menningarsjóði Rangárþings ytra, sem komið var á fót á þessu ári. Markmið sjóðsins er að efla og styrkja menningarstarf í sveitarfélaginu.

Að þessu sinni var það Leikfélag Rangæinga sem fékk úthlutað 250.000 krónum en markmið Leikfélags Rangæinga er að setja upp leiksýningu á komandi vetri og mun það svo sannarlega verða lyftistöng fyrir menningarstarf í sveitarfélaginu.

Fyrri greinSelfoss byrjaði á jafntefli
Næsta greinForsetinn og leikskólabörn afhjúpuðu Afrekshug