Kviknaði í bíl við bensíndælu

Bíllinn var alelda og er ónýtur eftir eldsvoðann. Ljósmynd/BÁ

Brunavörnum Árnessýslu bárust boð um að eldur væri í bifreið á Eyrarbakka rétt eftir klukkan sex í morgun.

Talsverður viðbúnaður var viðhafður þar sem bifreiðin var upp við bensíndælu á bensínstöð.

Fyrstu aðilar á vettvang slógu verulega á eldinn með duftslökkvitækjum en eftir að dælubifreið frá Brunavörnum Árnessýslu kom á vettvang gekk slökkvistarf greiðlega.

Talið er að kviknað hafi í bifreiðinni út frá vélbúnaði.

Fyrri greinÍbúafundur í Árborg í kvöld
Næsta greinElvar Örn semur við Skjern