Kvenfélagskonur gáfu flatskjái

Kvenfélag Villingaholtshrepps færði Heilbrigðisstofnun Suðurlands í dag tvö Thomson sjónvarpstæki að gjöf. Tækin er bæði 39″ og verða sett upp á sjúkrastofum hand- og lyflækningadeildarinnar á Selfossi.

Verðmæti tækjanna er 179.800 krónur og eru þau kærkomin viðbót en nú þegar eru allmargar sjúkrastofur búnar sjónvarsptæki og létta þau dvölina fyrir sjúklinga sem þurfa á innlögn á stofnunina að halda.

Á heimasíðu HSu kemur fram að stofnunin hefur í gegnum tíðina verið þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga góða að víða í héraðinu, sem hafa fært henni ýmis tæki og er það ómetanlegt. Heilbrigðisstofnun Suðurlands er afar þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf og þann hlýhug sem gjöfinni fylgir.

Fyrri greinÖll sunnlensku liðin fengu útileiki
Næsta greinKaupin fóru „lítillega“ fram úr innkaupareglum