Krónan styður fjölbreytt verkefni á Suðurlandi

Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, verkefnastjóri á sviði sjálfbærni hjá Krónunni, Ann Irene, stofnandi Voices of Vík og Laura Pasztor, verslunarstjóri Krónunnar í Vík. Ljósmynd/Aðsend

Fjögur verkefni á Suðurlandi hljóta stuðning úr Samfélagsstyrk Krónunnar 2026. Meðal styrkþega eru Frístundarheimili Árborgar, Hestamannafélagið Sleipnir á Selfossi, Íþróttafélagið Skyttur á Hvolsvelli og menningarverkefnið Voices of Vík: Language, Culture & Community í Vík í Mýrdal.

Verkefnin eru ólík en eiga það sameiginlegt að skapa jákvæð tækifæri í nærsamfélaginu. Frístundarheimili Árborgar fær styrk til kaupa á plokkstöngum sem nýtast við umhverfishreinsun, Sleipnir til reiðnámskeiðsins Allir á bak fyrir börn með fötlun og Skyttur til uppbyggingar píludeildar fyrir krakka. Í Vík fær menningarverkefnið Voices of Vík stuðning við að efla tengsl fólks í gegnum tungumál, menningu og samfélag.

Reglulegar samverustundir þar sem allir eru velkomnir
„Það er virkilega gaman að geta stutt við góða hugmynd hér heima í Vík. Vík er fjölbreytt samfélag þar sem fólk með ólíkan bakgrunn býr og starfar saman og því finnst okkur verkefni Ann eiga sérstaklega vel við hér. Við sjáum á hverjum degi hvað það skiptir miklu máli að fólk taki höndum saman og geri góða hluti fyrir samfélagið og við erum mjög glöð að Krónan geti verið hluti af því,“ segir Laura Pasztor, verslunarstjóri Krónunnar í Vík.

Ann Irene, stofnandi Voices of Vík, er þakklát fyrir stuðninginn og segir að verkefnið snúist um að brjóta niður hindranir.

„Í Vík býr ótrúlega fjölbreytt samfélag og við viljum skapa fleiri tækifæri fyrir fólk til að kynnast, mynda tengsl og upplifa að það tilheyri sama samfélagi. Með Voices of Vík viljum við brjóta niður hindranir sem geta fylgt ólíkum tungumálum og menningarheimum og skapa reglulegar, aðgengilegar stundir þar sem allir eru velkomnir. Stuðningur Krónunnar hjálpar okkur að halda áfram að byggja upp þessi mikilvægu tengsl í nærsamfélaginu,“ segir Ann.

Hugmyndir í heimabyggð
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður árlega verkefni sem hafa jákvæð áhrif á nærumhverfi fólks. Við val á verkefnum er meðal annars horft til lýðheilsu, umhverfismála og samfélagsuppbyggingar. Með stuðningnum vill Krónan efla góðar hugmyndir sem verða til í heimabyggð og skapa jákvæð áhrif, hvort sem það er með hreinna umhverfi, auknum tækifærum til þátttöku eða sterkari tengslum fólks í samfélaginu.

Fyrri greinOrka náttúrunnar og Thor landeldi semja um aukna raforku