Kristín ráðin æskulýðs- og tómstundafulltrúi

Kristín Ómarsdóttir.

Kristín Ómarsdóttir hefur verið ráðin æskulýðs- og tómstundafulltrúi Mýrdalshrepps. Hún mun hefja störf í febrúar.

Kristín er lýðheilsufræðingur og hefur lokið BA gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði frá Háskóla Íslands og MPH gráðu frá háskólanum í Lundi. Hún hefur reynslu af tómstundastarfi með börnum og unglingum og hefur stofnað nýsköpunarfyrirtæki í heilbrigðislausnum og heilsueflandi lausnum í Svíþjóð.

Verkefni æskulýðs- og tómstundafulltrúa eru m.a. verkefnavinna og stefnumótun í heilsu-, æskulýðs- og tómstundamálum og er einnig tengiliður sveitarfélagsins við félagasamtök sem eru með skipulagt æskulýðs- og tómstundastarf.

Fyrri greinVefmyndavélar á Ölfusá
Næsta greinFyrir hvern setur þú upp kolluna?