Klúbbur matreiðslumeistara stofnar Suðurlandsdeild

Tryggvaskáli á Selfossi.

Með stóraukinni ferðaþjónustu og fjölgun íbúa á Suðurlandi hefur veitingastöðum fjölgað hratt á undanförnum árum. Þessari fjölgun fylgir fjölgun fagfólks á svæðinu og nú stendur til að stofna Suðurlandsdeild Klúbbs matreiðslumeistara.

Klúbbur matreiðslumeistara er félag fagfólks í matreiðslu sem sinnir hefðbundnu félagsstarfi og eflir íslenska matargerð með umfangsmikilli þjálfun og keppnisstarfi ungs fagfólks. Þorri starfs félagsins fer fram á höfuðborgarsvæðinu en öflug deild er einnig starfandi á Norðurlandi.

Stofnfundur KM Suðurlands verður haldin í Tryggvaskála á Selfossi þriðjudaginn 26. september kl. 18:00. Allir matreiðslumenn og konur eru hvattir til að mætta á fundinn.

„Þessir fundir eru frábær vettvangur til að hitta annað fagfólk, kynnast því sem er í gangi á svæðinu og skiptast á skemmtisögum úr faginu,“ segir Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara.

Reiknað er með mánaðarlegum fundum í vetur, sem haldnir verða um allt Suðurland.

„Við hlökkum til að sjá sem flesta fagmenn á stofnfundinum og á fundum með okkur í vetur,“ segir Þórir ennfremur.

Þórir Erlingsson. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar

Fjölbreytt starf hjá KM
Helstu verkefni Klúbbs matreiðslumeistara er rekstur Kokkalandsliðs Íslands, sem er fulltrúi Íslands á stærstu alþjóðlegu matreiðslukeppnum kokkalandsliða, HM og Ólympíuleikum. Liðið eflir metnað innan fagsins, sinnir verðmætri vöruþróun og er öflug landkynning fyrir íslenska ferðaþjónustu og matvæla útflutning. Íslenska liðið er á topp 10 í alþjóðlegum samanburði og hefur best náð 3. sæti á Ólympíuleikum, og 5. sæti á HM.

Einnig sér klúbburinn um keppnina Kokkur ársins, hefur séð um Norðurlandakeppni matreiðslumanna og Norðurlandaþing matreiðslumeistara sem haldið er á Íslandi á tíu ára fresti. Þá heldur félagið hátíðarkvöldverð á hverju ári.

Fyrri greinTvö útköll hjá slökkviliðinu
Næsta greinBrynjar valinn í U15 landsliðið