Klippa hár og selja föt til styrktar Sigurhæðum

Brynja á milli þeirra Bryndísar Þorsteinsdóttur og Dórotheu Oddsdóttur á Dís Hársnyrtistofu. Ljósmynd/Aðsend

Mánudaginn 24. apríl næstkomandi mun Hárstofan Hellu ásamt Hársnyrtistofunni Dís Hvolsvelli leggja Brynju Ósk Rúnarsdóttur í lið í söfnun sinni fyrir Sigurhæðir. Brynja safnar í minningu móður sinnar, Þórdísar Óskar Sigurðardóttur, sem lést árið 2020.

Frá klukkan 17:00 fram og fram á kvöld mun öll innkoma af klippingum renna óskipt til söfnunarinnar.

„Við ætlum einnig að selja vel með farin notuð föt á vægu verði næstu daga. Innkoma af fatasölunni fer einnig óskipt til styrktar Sigurhæðum. Við gerum þetta saman, verðum allar að klippa á Hárstofunni Hellu frá klukkan 17:00. Við tökum einnig við lítið notuðum, eigulegum og söluvænum flíkum. Þið styrkið við söfnunina með því móti,“ segir Bryndís Þorsteinsdóttir, eigandi Hársnyrtistofunnar Dís á Hvolsvelli, í samtali við sunnlenska.is.

Þeir sem vilja heita á Brynju Ósk og leggja málefninu lið geta lagt inn á reikning 0308-13-1093, kennitala: 240769 4419. Verndari reikningsins er Sigríður Dröfn Björgvinsdóttir.

Paula og Anna Gunna á Hárstofunni Hellu með orkustöðvahjörtu sem eru staðgenglar Brynju. Ljósmynd/Aðsend
Fyrri greinUndirritun samnings vegna aukinnar þjónustu
Næsta greinBjörguðu 14 ára pilti á kænu af Laugarvatni