Jóna Guðrún hlaut framúrskarandi nemendaverðlaun

(F.v.) Samaneh Nickaying, fyrrum brautarstjóri í landslagsarkitektúr, Jóna Guðrún og Hermann Gunnlaugsson, brautarstjóri í landslagsarkitektúr við LBHÍ. Ljósmynd/Aðsend

Þriðjudaginn 12. september lauk þriggja daga vinnufundum og ráðstefnu hjá ECLAS við Mendel háskólann við Brno í Tékklandi, en það eru samtök háskóla í Evrópu sem kenna landslagsarkitektúr og standa vörð um góða menntu í faginu.

LAndbúnaðarháskóli Íslands hefur verið aðili að ECLAS í 20 ár og reglulega sent fulltrúa á fundina. Að þessu sinni var fundurinn sérstakur og frábær viðurkenning á því að námið við LBHÍ býður nemendum skólans góða menntun og undirbúning fyrir frekara nám.

Á verðlaunaafhendingu í Lednice kastalanum í Tékklandi hlaut Jóna Guðrún Kristinsdóttir framúrskarandi nemendaverðlaun frá ECLAS í bakkalár námi, 1st Cycle Outstanding Student Award, og er það í fyrsta skipti sem útskrifaður nemandi af námsbraut í landslagsarkitektúr við LBHÍ hlýtur þessa viðurkenningu.

Í þakkarorðum Jónu komu fram innilegar þakkir til Landbúnaðarháskólans og allra kennara við brautina, sérstakar þakkir fengu samnemendur fyrir góða vináttu og öflugt samstarf í gegnum námið. Að lokum þakkaði hún ECLAS kærlega fyrir viðurkenninguna sem er henni hvatning til að leggja sitt af mörkum í betrumbótum á því umhverfi sem við sköpum.

Frá afhendingu verðlaunanna í Lednice kastalanum. Ljósmynd/Aðsend
Fyrri greinSlembiskákmót framundan í Fischersetrinu
Næsta greinKynningarkvöld fyrir nýja félaga