Jóna Björg ráðin leikskólastjóri Undralands

Jóna Björg Jónsdóttir hefur verið ráðinn leikskólastjóri við Leikskólann Undraland á Flúðum. Ráðningin var staðfest á fundi sveitarstjórnar í síðustu viku.

Jóna Björg er með B.Ed í leikskólakennarafræðum og hefur leyfisbréf sem kennari á öllum skólastigum. Hún er með diplómu í uppeldis- og menntunarfræðum með áherslu á stjórnun skólastofnana og M.Ed í uppeldis og kennslufræðum með áherslu á stjórnun skólastofnana þar sem lokaverkefni hennar var rannsókn á stjórnunarhlutverkum deildarstjóra í leikskólum.

Jóna Björg hefur gegnt stjórnunarstöðum í leikskólum frá árinu 2005 og verið leikskólastjóri í leikskólanum Krakkaborg í Flóahreppi auk þess sem hún hefur verið skólastjóri Kerhólsskóla sem er samrekinn leik- og grunnskóli frá árinu 2016. Starfsferill Jónu í leikskólum spannar um 20 ár og hefur hún á þeim tíma sinnt fjölbreyttum störfum innan leikskóla.

Í afgreiðslu sveitarstjórnar segir að hún hafi „kynnt sér ítarlega þær umsóknir sem bárust um stöðuna og fyrirliggjandi gögn. Að þeirri yfirferð lokinni og að fenginni umsögn formanns skólanefndar og sveitarstjóra samþykkir sveitarstjórn samhljóða að Jóna Björg Jónsdóttir verði ráðin.“

Fyrri greinBrynja ráðin yfirlæknir á bráðamóttökunni
Næsta grein66°Norður opnar í þjónustustöðvum N1