Jón Helgi nýr stjórnarformaður

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur skipað Jón Helga Björnsson sem formann stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs frá og með 1. janúar síðastliðnum.

Jón Helgi er líffræðingur að mennt og með MBA gráðu frá University of Manchester. Hann starfaði áður sem forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og hefur langa reynslu af stjórnun í opinberum rekstri og í atvinnulífinu. Jón Helgi er búsettur á Laxamýri í Þingeyjarsýslu.

Jón Helgi tekur við stöðu stjórnarformanns af Auði H. Ingólfsdóttur sem lét af störfum um áramótin að eigin ósk. Auður hefur gengt starfi stjórnarformanns frá mars 2020 á miklum mótunartíma í starfi þjóðgarðsins og mun hún á næstu misserum koma fyrir hönd ráðuneytisins að öðrum verkefnum sem tengjast þjóðgarðinum.

Fyrri grein„Hlökkum til að bjóða fólk velkomið í HorseDay-höllina á Ingólfshvoli“
Næsta greinNýtt merki Skaftárhrepps kemur betur út á prenti