Íslenskir prjónarar taka fundina og bjóða í frí á Suðurlandi

Landshlutamyndband AI Knittakers fyrir Suðurland var tekið upp í Hrunalaug.

Heiðdís Einarsdóttir á Selfossi er meðal prjónaranna í AI Knittakers, nýrri markaðsherferð Íslandsstofu fyrir áfangastaðinn Ísland.

Heiðdís ólst upp á sauðfjárbúinu Götu í Holtum og kemur úr mikilli prjónafjölskyldu. Hún er örvhent og lærði að prjóna hjá kennara sínum Sigurlaugu, sem var líka örvhent. „Mér finnst gott að prjóna þegar ég slaka á. Það veitir mér hugarró og er svo góð leið til að vera í núinu,“ segir Heiðdís.

Herferðin, sem gengur undir nafninu AI Knittakers (Authentic Icelandic Knittakers), beinir sjónum að sítengdri fundamenningu nútímans og auknum kröfum um afköst á tímum gervigreindar. Ísland býður fram prjónara sem leysa einstaklinga af á fjarfundum svo það geti nýtt tímann í eitthvað annað, til dæmis að ferðast til Íslands.

Nærri 30 prjónarar úr öllum landshlutum taka þátt í verkefninu. Prjónararnir sitja raunverulega fundi hjá ýmiskonar fyrirtækjum, lesa salinn og taka eftir gildishlöðnum þögnum, viðbrögðum og ágreiningi. Afurðin er svo eitt prjónað orð sem endurspeglar inntak fundarins. Markmið herferðarinnar er að kynna Ísland sem vellíðunaráfangastað þar sem fólk getur notið heitra lauga, náttúru og upplifunar sem endurnærir.

„Samkeppnin um ferðamenn hefur aldrei verið harðari og fleira keppir um athygli fólks en nokkru sinni. Þess vegna þarf markaðssetning Íslands að vekja athygli. Við vitum hvað fólkið sem við tölum við vantar: tíma, hvíld, náttúru og fólk sem hlustar,“ segir Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðssamskipta hjá Íslandsstofu.

Þjónustan er ókeypis á lykilmörkuðum í gegnum AIKnittaker.com frá 29. október til 20. nóvember. Herferðin er hluti af markaðsverkefninu Ferðaþjónusta til framtíðar sem Íslandsstofa rekur fyrir hönd íslenskrar ferðaþjónustu í samstarfi við stjórnvöld, Samtök ferðaþjónustunnar og markaðsstofur landshlutanna.

Herferðin er unnin í samstarfi við Peel og M&C Saatchi. Þóra Hilmarsdóttir leikstýrði og Skot sá um framleiðslu.

Fyrri greinLjósastýring á Markarfljótsbrú næstu vikurnar