Íslendingarnir í Ísrael verða sóttir á morgun

Fjöldi langferðabíla bíður fyrir utan hótel Íslendinganna í Jerúsalem. Ljósmynd/Fjóla St. Kristinsdóttir

Utanríkisráðherra hefur ákveðið að senda farþegaflugvél á vegum íslenska ríkisins til Ísraels. Henni er ætlað að ferja heim um 120 Íslendinga sem þar eru strandaglópar vegna ófriðarástandsins í landinu en það hefur sett allar samgöngur úr skorðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem var að berast frá ráðuneytinu. Eins og sunnlenska.is greindi frá í gær eru um níutíu Íslendingar eru nú staddir í Jerúsalem og eru stærstur hluti hópsins frá Suðurlandi.

Gert er ráð fyrir að vélin fari frá Tel Aviv klukkan 09:10 að staðartíma í fyrramálið og farþegar verði komnir til Íslands um miðjan dag á morgun.

Ísland hyggst bjóða Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum laus sæti í vélinni sem ekki nýtast fyrir íslenska ríkisborgara.

Fyrri greinGul viðvörun vegna úrhellisrigningar
Næsta greinKirkjuhvoll í skelfilegu ástandi vegna myglu