Innilaugin opnar í dag eftir endurbætur

Skipt var um gólfefni utan laugar og voru settar nýjar rennibrautir.

Það gleður marga að búið er að opna innisundlaugina í Þorlákshöfn en hún er sérstaklega skemmtileg með leiktækjum sem þau yngstu elska og notaleg fyrir mömmur og pabba.

Skipt var um gólfefni utan laugar og settar upp nýjar rennibrautir.

Það er tilvalið að njóta aðventunnar og fara með fjölskylduna í sund í Þorlákshöfn. Útilaugin verður sérstaklega upphituð á laugardögum í desember og verður jólastemning með jólatónum, jólaljóðum til lestrar í laug og epsom salti í gufunni sem hefur góð áhrif á húðina.

Fyrri greinKveikt á trénu í Hveragerði
Næsta greinHuppa fagnar tíu ára afmæli