Íbúar kjósa um skipulagstillögur vegna mölunarverksmiðju

Þorlákshöfn. Ljósmynd/Aðsend

Íbúar í Sveitarfélaginu Ölfusi munu kjósa um skipulagstillögur vegna mölunarverksmiðju og hafnar í Keflavík við Þorlákshöfn. Niðurstaða kosningarinnar er bindandi.

Kosningin hefst formlega næstkomandi laugardag, þann 18. maí og lýkur þann 1. júní. Hægt er að kjósa á bæjarskrifstofunni en þann 1. júní verður hægt að kjósa samhliða forsetakosningunum í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss.

Íbúum gefst kostur á að kjósa um tillögurnar og verða svarmöguleikar tveir:

(ég samþykki skipulagstillögurnar og þar með að fyrirtækið fái heimild til að reisa verksmiðjuna sem fjallað er um í áður auglýstum skipulagstillögum).

eða

Nei (ég hafna skipulagstillögunum og þar með að fyrirtækinu verði ekki heimilað að reisa verksmiðjuna sem fjallað er um í áður auglýstum skipulagstillögum).

Skipulagstillögurnar verða til kynningar á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss fram til 1. júní.

Rétt til þátttöku í íbúakosningu hafa þeir sem mega kjósa í sveitarstjórnarkosningum, þ.e. íslenskir, danskir, finnskir, sænskir og norskir ríkisborgarar, 18 ára og eldri með lögheimili í Ölfusi og aðrir erlendir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár samfellt.

Fyrri greinTilboð opnuð í viðbyggingu á Borg
Næsta greinSamningur um landgræðsluskóga endurnýjaður