Íbúalistinn er nýtt framboð í Ölfusi

Frambjóðendur Íbúalistans í Ölfusi. Ljósmynd/Aðsend

Íbúalistinn er nýtt framboð í Sveitarfélaginu Ölfusi. „Það eru kraftmiklir og ólíkir einstaklingar sem mynda Íbúalistann en það sem sameinar þá er ástríða fyrir velferð samborgara sinna og viljinn til að bjóða fram krafta sína á komandi kjörtímabili til að vinna að málefnum Sveitarfélagsins Ölfuss,“ segir í tilkynningu frá framboðinu.

Ása Berglind Hjálmarsdóttir, menningarstjórnandi, frumkvöðull og tónlistarkennari, leiðir listann og í 2. sæti er Böðvar Guðbjörn Jónsson, hugbúnaðarsérfræðingur.

Íbúalistinn vinnur nú að mótun stefnumála og vill gera það í virku samtali við íbúa. Frambjóðendur munu bjóða upp á málefnafundi á næstunni og hvetur áhugasöm til að hafa samband á ibualistinn@gmail.com eða hringja beint í einhvern af frambjóðendum Íbúalistans.

Hægt er að kynna sér frambjóðendur nánar á heimasíðu framboðsins.

Frambjóðendur Íbúalistans í Ölfusi:
1. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, 37 ára menningarstjórnandi, frumkvöðull og tónlistarkennari
2. Böðvar Guðbjörn Jónsson, 29 ára hugbúnaðarsérfræðingur
3. Berglind Friðriksdóttir, 33 ára sálfræðingur
4. Sigfús Benóný Harðarson, 42 ára aðalvarðstjóri hjá ríkislögreglustjóra
5. Hrafnhildur Lilja Harðardóttir, 38 ára sálfræðingur
6. Rumyana Björg Ivansdóttir, 56 ára sjúkraliði
7. Arna Þórdís Árnadóttir, 40 ára verkefnastjóri
8. Steingrímur Þorbjarnarson, 58 ára jarð- og mannfræðingur
9. Guðlaug Arna Hannesdóttir, 27 ára geislafræðingur
10. Guðmundur Oddgeirsson, 64 ára öryggis- og vinnuverndarfulltrúi
11. Agnes Erna Estherardóttir, 46 ára bókhaldari, söngkona og smiður.
12. Davíð Reimarsson, 30 ára stuðningsfulltrúi
13. Óskar Hrafn Guðmundsson, 62 ára verkamaður
14. Elín Björg Jónsdóttir, 69 ára eftirlaunakona

Fyrri greinHellisheiði og Þrengsli lokuð
Næsta greinAndri gefur kost á sér í 3. sætið