
Hrunamannahreppur hlaut fyrsta sætið í könnuninni Sveitarfélag ársins 2026 en niðurstöður hennar voru kynntar á uppskeruhátíð á Hótel Selfossi í síðustu viku.
Könnunin, sem nú var framkvæmd í fimmta sinn, sýnir að starfsfólk sveitarfélaga er almennt ánægt með starfsumhverfi sitt og að ánægja með launakjör, sveigjanleika og jafnrétti hefur aukist undanfarin fimm ár.
Fjögur sveitarfélög hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í könnuninni en auk Hrunamannahrepps voru það Grímsnes- og Grafningshreppur, Grundarfjarðarbær og Skeiða- og Gnúpverjahreppur.
Sveitarfélögin sem hlutu viðurkenningu hafa verið á meðal þeirra efstu í könnuninni undanfarin ár. Hrunamannahreppur hefur áður verið í hópi efstu sveitarfélaga og Grímsnes- og Grafningshreppur hlaut fyrsta sætið þegar könnunin var fyrst framkvæmd árið 2022.
Ánægja með starfsumhverfið hefur aukist
Könnunin er ein af stærri vinnumarkaðskönnunum hér á landi. Henni er ætlað að varpa ljósi á starfsumhverfi og stjórnun á vinnustöðum sveitarfélaga, hvetja til umbóta og veita þeim vinnustöðum viðurkenningu sem standa sig vel í að hlúa að starfsfólki sínu.
Niðurstöður ársins sýna að starfsfólk sveitarfélaga er almennt ánægt í störfum sínum. Þá hefur ánægja með launakjör, sveigjanleika og jafnrétti aukist á þeim fimm árum sem könnunin hefur verið framkvæmd.
Nokkur munur kemur þó fram á upplifun starfsfólks eftir kyni, störfum og starfssviðum. Karlar eru almennt ánægðari en konur með starfsumhverfi og stjórnun og stjórnendur ánægðastir þegar niðurstöður eru skoðaðar eftir starfsstéttum.
Lægstu einkunnirnar koma frá starfsfólki í framreiðslustörfum, meðal annars matráðum og aðstoðarfólki í eldhúsum. Þegar niðurstöður eru skoðaðar eftir starfsemi sveitarfélaga gefur starfsfólk stjórnsýslu hæstu einkunnir fyrir alla þætti könnunarinnar en starfsfólk í félags- og velferðarþjónustu þær lægstu.
Niðurstöðurnar sýna því að þótt starfsánægja sé almennt mikil er áfram mikilvægt að huga að ólíkum starfsaðstæðum og tækifærum starfsfólks til umbóta.
Könnunin Sveitarfélag ársins er samstarfsverkefni 11 bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB og Gallup. Þessi ellefu félög eru Starfsmannafélag Mosfellsbæjar, Starfsmannafélag Vestmannaeyja, Starfsmannafélag Garðabæjar, Starfsmannafélag Surðurnesja, Starfsmannafélag Kópavogs, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar, Starfsmannafélag Húsavíkur, Kjölur, FOSS, FOSA og Sameyki utan Reykjavíkur.
