Fjölskyldur hafa streymt í Hornið Creative Studio í miðbæ Selfoss í haustfríinu, þar sem börn og fullorðnir mála drauga, grasker og leðurblökur í hrekkjavökuanda.
Það er hrollvekjandi stemning í Horninu við Brúarstræti 12 þessa dagana. Nornahattar svífa yfir vinnuborðunum, risakónguló hangir í glugganum og nornapottur stendur í gluggakistunni innan um handmálaða drauga og grasker.
Steinunn Birna Guðjónsdóttir, eigandi Hornsins, hefur tekið á móti fjölda fjölskyldna síðustu daga. Í haustfríinu, dagana 22. til 25. október, býður hún upp á hrekkjavökuföndur fyrir krakka þar sem málaðir eru draugar, svartir kettir, grasker og leðurblökur.

„Viðtökurnar hafa farið fram úr öllum væntingum. Það er svo yndislegt að sjá foreldra og börn sitja saman, gleyma símanum og búa til eitthvað með höndunum sem þau taka svo með sér heim,“ segir Steinunn.
Hver föndurstund tekur um klukkustund og kostar 4.900 krónur á mann, allt efni innifalið. Opið er fyrir skráningu milli klukkan 10 og 17 og fer hún fram á hornidcreativestudio.is.
Fullorðnir geta líka fengið sína stund
Krakkarnir eru ekki þeir einu sem fá að föndra. Hægt er að bóka spooky föndurkvöld fyrir fullorðna, þar sem gestir fá fordrykk og töfra fram alls kyns hrekkjavökuskraut.
„Hugmyndin er að leyfa fólki að hleypa fram sinni innri norn. Þetta er mjög skemmtilegt fyrir vinkonuhópa eða starfsmannahópa til að gera sér glaðan dag saman,“ segir hún.

Ár frá opnun
Hornið opnaði í október í fyrra og er því rétt um ársgamalt. Þar geta gestir leirað, handmálað tilbúið keramik og sótt námskeið, bæði einstaklingar og hópar, auk þess sem þar eru seldir listmunir.
„Ég hefði ekki getað óskað mér betra fyrsta ár. Selfyssingar og nærsveitungar hafa tekið Horninu opnum örmum og miðbærinn er frábær staður fyrir svona rými,“ segir Steinunn.
Spurð hvað taki við eftir hrekkjavökuna segir hún að jólaföndrið sé handan við hornið og að aðventan verði annasöm í Horninu.

