Hræðilegir búningar og draugahús í kjallaranum

Lilja Heiðbjört Valdimarsdóttir, bókasafnsvörður, við fataskiptislána. sunnlenska.is/Jóhanna Petersen

Í Bókasafni Árborgar á Selfossi hefur verið komið fyrir búningaskiptislá fyrir hrekkjavökuna. Þetta er í þriðja sinn sem bókasafnið stendur fyrir búninga-hringrásarkerfi fyrir hrekkjavökuna. Ekki er skilyrði að koma með búning til að fá einn af slánni.

„Við settum slána upp núna síðastliðinn mánudag. Þetta er þriðja árið sem við erum með svona búningaslá á myrkradögunum okkar. Við erum hrifin af endurnýtingu hér á safninu enda í eðli bókasafna ekki satt? Endilega komið með búninga á slánna ef þið eigið og það er líka velkomið að fá búning án þess að koma með í staðinn,“ segir Rakel Sif Ragnarsdóttir, bókavörður hjá Bókasafni Árborgar, í samtali við sunnlenska.is.

Fataskiptisláin verður uppi til mánudagsins 2. nóvember.

Draugahúsið í kjallaranum hefur vakið mikla lukku. Aðgangur er ókeypist og allir velkomnir sem þora. sunnlenska.is/Jóhanna Petersen

Skuggalega góðar viðtökur
Myrkradagar eru í algleymi í bókasafninu þessa dagana. Í kjallara bókasafnsins hefur verið komið upp hræðulegu draugahúsi sem hefur slegið í gegn hjá ungnum sem öldnum.

„Við opnuðum sýninguna okkar 20. október og þetta er í fimmta skipti sem við erum með myrkradaga á safninu í kringum hrekkjavökuna.“

„Viðtökurnar hafa verið skuggalega góðar og fólk kemur orðið langt að til að sjá og skoða, sem gleður okkur hræðilega. Starfsmenn leggja mikið á sig til að gera þetta að veruleika. Þeir veiða og múlbinda beinagrindur sem þeir rekast á og setja í kjallarann hjá okkur og hjálpa köngulónum að spinna vefi,“ segir Rakel en vert er að geta þess að hún hefur sjálf séð um að smíða líkkistur, gapastokka og eitt og annað heima hjá sér fyrir myrkadagana.

„Á föstudag og laugardag verða allir starfsmenn bókasafnsins í hrekkjavökubúningum. Við viljum endilega sjá allskyns furðuverur á bókasafninu þá. Hlökkum til að sjá sem flesta,“ segir Rakel ennfremur.

Rakel Sif Ragnarsdóttir, bókavörður og líkkistusmiður í hjáverkum. sunnlenska.is/Jóhanna Petersen
Fyrri greinEmil&Lína og Sjóðurinn góði safna jólagjöfum