Hlaup hafið úr Grímsvötnum

Vatnamælingamenn Veðurstofunnar að störfum við Gígjukvísl. Mynd úr safni. Ljósmynd: Veðurstofan/Njáll Fannar Reynisson

Í morgun kl. 6:53 mældist jarðskjálfti af stærðinni 4,3 í Grímsvötnum. Það er stærsti skjálfti í Grímsvötnum frá upphafi mælinga (1991). Síðustu daga hefur hægt vaxandi hlaupórói mælst á Grímsfjalli og síðan í gær hefur vatnsmagn í Gígjukvísl farið vaxandi. Jökulhlaup er því hafið úr Grímsvötnum og í tilkynningu frá Veðurstofunni segir líklegt að jarðskjálftinn í morgun sé vegna þrýstingsléttis í kjölfar upphafs jökulhlaupsins.

Síðast varð hlaup úr Grímsvötnum í október 2022 og þar áður í kringum mánaðamót nóvember og desember 2021. Samkvæmt mælingum Jarðvísindastofnunar er vatnsmagn í Grímsvötnum nú talið vera um 0,29 km3 sem er helmingi meira en fyrir hlaupið 2022.

Hámarksrennsli um eða eftir helgi
Ef miðað er við að atburðarás í þessu hlaupi verði svipuð og í síðustu tveimur hlaupum má gera ráð fyrir að hámarksrennsli úr Grímsvötnum verði um eða fljótlega eftir komandi helgi. Hámarksrennsli í Gígjukvísl við Þjóðveg 1 næst svo um 1-2 sólarhringum seinna. Hlaupið ætti ekki hafa nein áhrif á mannvirki, svosem vegi og brýr.

Auknar líkur á eldgosi
Dæmi eru um að eldgos verði í Grímsvötnum eftir að vatn hleypur þaðan. Talið er að skyndilegur þrýstiléttir vegna lækkandi vatnsborðs hleypi af stað gosum. Síðast varð atburðarásin slík árið 2004 og þar áður 1934 og 1922. Mun oftar hefur þó hlaupið úr Grímsvötnum án þess að til eldgoss kæmi, og hafa 12 hlaup komið frá Grímsvötnum eftir 2004 án þess að eldgos hafi fylgt í kjölfarið. Síðast varð eldgos í Grímsvötnum árið 2011, en það var ekki í tengslum við jökulhlaup þaðan.

Vegna jökulhlaupsins og aukinnar skjálftavirkni verður fluglitakóði fyrir eldstöðina færður á gulan lit, í samræmi við það að eldstöðin sýnir merki um virkni umfram venjulegt ástand.

Fyrri greinHeimamenn buðu lægst í Þingskálaveg
Næsta greinEitt Íslandsmet og fimm héraðsmet á Áramótamóti