Hlaðvarpið True Crime Ísland eins árs

Kolka B. Hjaltadóttir og Anna Einarsdóttir standa fyrir hlaðvarpinu True Crime Ísland. Ljósmynd/Aðsend

Eitt ár er nú liðið frá því að hlaðvarpið True Crime Ísland hóf göngu sína. Á liðnu ári hafa þættirnir, sem eru í umsjón tveggja lögfræðinga, orðið fastur liður á mánudögum hjá fjölmörgum Íslendingum.

Að baki hlaðvarpinu standa Anna Einarsdóttir, lögmaður og Kolka B. Hjaltadóttir, lögfræðingur, en saman reka þær lögmannsstofuna Kratos. Í hlaðvarpinu taka þær fyrir nýleg og þekkt íslensk sakamál. Markmiðið er að veita hlustendum innsýn í atburðarás hvers máls, greina sönnunargögn og skýra þau lagasjónarmið sem lágu til grundvallar niðurstöðu dómstóla. True Crime Ísland er eina íslenska hlaðvarpið sem nálgast sakamál með þessum hætti en eina heimildin sem þær styðjast við er dómurinn sjálfur.

Sannleikurinn en ekki slúður
Hugmyndin að þáttunum kviknaði í kjölfar umræðu í athugasemdakerfum og á samfélagsmiðlum þar sem tilfinningar og hálfsannleikur lita oft viðbrögð fólks. Þegar dómur fellur í þungu sakamáli fylgja honum gjarnan háværar sögusagnir, einkum ef fólki þykir refsingin ekki í samræmi við brotið.

„Fólk les oftast nær aðeins fyrirsagnir og kannski ákvörðun refsinga og upplifir að réttlætinu hafi ekki verið fullnægt. Heildarmyndin, hin raunverulega saga af því sem átti sér stað og lög sem dómari þarf að fylgja, er oft eitthvað sem fólki vantar. Í þáttunum rekjum við þessa atburðarás nákvæmlega og rökrétt, því það sem raunverulega gerðist samkvæmt gögnum málsins er oft talsvert frábrugðið þeim sögusögnum sem ganga manna á milli,“ segir Anna.

Breiður hlustendahópur
Hlaðvarpið hefur notið mikilla vinsælda frá fyrsta degi. Hópur greiðandi áskrifenda stækkar stöðugt og nálgast vinsælustu opnu þættirnir nú 20.000 hlustanir hver. Áhersla er lögð á vandaða umfjöllun. Hlustendahópurinn er fjölbreyttur en athygli hefur vakið að karlar á öllum aldri eru þar stór og virkur hluti.

„Við fundum fljótt fyrir miklum áhuga en viðbrögðin hafa farið fram úr okkar björtustu vonum. Við heyrum reglulega frá fólki sem leitar svara við flóknum lögfræðilegum atriðum,“ segir Kolka B. Hjaltadóttir lögfræðingur. „Réttarkerfið getur oft virst lokaður heimur. Við tökum hlustendur með inn í réttarsalinn og sýnum þeim ferlið í heild sinni. Fólk sækist eftir því að skilja söguna til fulls og fá skýringar á því hvernig kerfið virkar í raun og veru.“

Nýr þáttur kemur út alla mánudaga. Mörg veigamikil sakamál eru nú til meðferðar í réttarkerfinu og verður fjallað ítarlega um þau í þáttunum jafnóðum og niðurstöður liggja fyrir. Nú þegar hefur verið fjallað um mörg stór og þekkt íslensk sakamál á borð við Gufunesmálið, Edition-hótel málið, Rauðagerðismálið, Grænlenska sjóarann, Barðavog, Bátavog og fleiri.

True Crime Ísland er aðgengilegt í áskrift á vefnum kratos.is á 1.290 kr. á mánuði, en einstaka sinnum eru opnir þættir í heild sem eru aðgengilegir á öllum helstu hlaðvarpsveitum og á YouTube.

Fyrri greinHrunamannahreppur er Sveitarfélag ársins 2026