Hilary ráðin markaðs- og fjölmenningarfulltrúi

Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri og Hilary Jane Tricker nýráðin markaðs- og fjölmenningarfulltrúi. Ljósmynd/Mýrdalshreppur

Hilary Jane Tricker hefur verið ráðin markaðs- og fjölmenningarfulltrúi Mýrdalshrepps. Hún mun hefja störf 1. desember næstkomandi.

Með ráðningunni er lögð áhersla á að efla markaðs- og kynningarmál sveitarfélagsins og styðja við öflugt fjölmenningarsamfélag.

„Í Mýrdalshreppi býr fólk af fjölbreyttum uppruna og felast mikil tækifæri í að styrkja tengsl íbúa, greiða aðgengi að upplýsingum og hvetja til virkrar þátttöku í samfélaginu,“ segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu.

Fyrri greinHringur fagnar 20 ára afmæli
Næsta greinLeikfélag Sólheima hlýtur Menningarverðlaun Suðurlands