Í sumar hefur Heilbrigðisstofnun Suðurlands haldið úti viðbragði á virkjanasvæði Landsvirkjunar á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Sjúkraflutningamaður HSU er á svæðinu frá morgni til kvölds og á bakvakt þess á milli. Þjónustan er því veitt allan sólarhringinn, allt árið um kring, langt frá næstu sjúkrabílum í byggð.
Á hálendinu er unnið að uppbyggingu vindorkuversins í Vaðöldu og stækkun í Sultartanga, auk þess sem virkjanir Landsvirkjunar eru í rekstri á svæðinu. Þar starfa nú mörg hundruð manns og Einar Tryggvason, sjúkraflutningamaður hjá HSU, er einn þeirra sem tryggja að hjálp sé aldrei langt undan.
„Á svæðinu er einn sjúkraflutningamaður á jeppabifreið sem er útbúin flestu því sem er í hefðbundnum sjúkrabíl,“ segir Einar í viðtali á heimasíðu HSU. „Við erum á ferð um svæðið eða í aðstöðu HSU í stjórnstöð Landsvirkjunar í Vaðölduveri. Í annan tíma er dvalið og gist á svæðinu á bakvakt.“
Hlutverkið er að vera fyrsta viðbragð á vettvangi slysa, óhappa eða veikinda, meta ástand og þörf á flutningi, hlúa að fólki og undirbúa flutning með sjúkrabíl eða þyrlu eða afgreiða málið á staðnum. Tvisvar í viku koma einnig hjúkrunarfræðingar frá HSU á svæðið, nokkrar klukkustundir í senn.
Líkt og frá Selfossi upp í Borgarnes
Vegalengdirnar á hálendinu eru miklar og þar skiptir tíminn öllu máli. „Sigölduvirkjun er til dæmis um 105 km frá Hvolsvelli og 111 km frá Selfossi, þar sem næstu sjúkrabílar eru staðsettir,“ segir Einar. „Til að setja það í samhengi er það svipað og frá Selfossi til Borgarness. Og enn lengra er í þær virkjanir sem standa efst eða innst á hálendinu.“
Við venjulegar aðstæður getur munað rúmum klukkutíma á viðbragðstíma. Á veturna koma svo tímabil þar sem einfaldlega er ófært á milli staða. „Þá er óneitanlega heppilegra að vera veðurtepptur á vettvangi, með starfsfólkinu á svæðinu, fremur en í langri fjarlægð.“

Meira en sjúkraflutningar
Starfið snýst þó ekki eingöngu um að bregðast við þegar eitthvað kemur upp á. Starfsfólk HSU situr daglega öryggisfundi með stjórnendum Landsvirkjunar og öryggis- og eftirlitsteymi verkfræðistofunnar COWI. Þar er farið yfir allt sem snýr að öryggi á verkstöðum og á ferðum til og frá svæðinu, rætt hvað gengur vel og hvað þarf að laga. Starfsfólkið hefur einnig sótt æfingar og námskeið, meðal annars til að öðlast réttindi til að fara upp í vindmyllurnar.
„Það má segja að sjúkraflutningastarfið sé bara hluti af verkefninu okkar hér. Áherslan er meiri á forvarnir og eftirlit, sérstaklega eftir því sem liðið hefur á, og við höldum að sú þróun eigi bara eftir að halda áfram.“
Og áskoranirnar eru af ýmsum toga. Í vindmyllunum er unnið í allt að 90 metra hæð. Í Sigöldu er unnið undir brattri hlíð þar sem hætta er á grjóthruni, falli í straumvatn og rafmagnsslysum, auk þess sem vatnslónunum fylgja vatnsþrýstingur, flóðahætta og köfun niður fyrir 20 metra. Ofan á það bætist hálendisveðrið. „Á vinnusvæðum predikum við í sífellu varúð og skynsemi,“ segir Einar.
Frá mótorhjólaslysum til mataræðis
Verkefni sumarsins hafa verið fjölbreytt að sögn Einars. Yfirlið, ofnæmisviðbrögð, mótorhjólaslys, ofkæling, árekstrar, bíll sem fór út í straumharða á og fall í á og foss. Allt niður í að gefa verkjalyf við höfuðverk eða lyf við bakflæði eða almennt spjall um hollara mataræði og heilbrigðan lífsstíl.
Í alvarlegri tilfellum reynir á verkjastillingu, lyfjagjöf, reynslu, ákvarðanatöku og ekki síst samvinnu við aðra sjúkraflutningamenn, starfsfólk heilsugæslustöðva HSU, þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitir, lögreglu, Vegagerðina og starfsfólkið á svæðinu.
„Bíll við bíl, daga og nætur“
Viðbragðið nýtist langt út fyrir vinnusvæðin. „Við förum í öll útköll, hvort sem það er niður í sveit til móts við félagana á sjúkrabílunum eða þar sem ferðamenn þurfa aðstoð á hálendinu hér í kring. Ef líkur eru á að við verðum fyrri til eða getum orðið að gagni, þá förum við á staðinn. Það breytir engu hvort um er að ræða íbúa, ferðamenn eða aðra,“ segir Einar.
Það sem kom Einari mest á óvart eftir sumarið var umferðin. „Það kom mér á óvart hversu mikil traffík er um þetta svæði, hvort sem fólk var á leið í Landmannalaugar, Veiðivötn eða hvert sem það var nú að fara. Bíll við bíl, daga og nætur.“ Og mögulega eru það einmitt ferðamennirnir, ótengdir framkvæmdunum, sem hafa átt alvarlegustu tilfellin hingað til.
Starfsfólk á svæðinu kann vel að meta nálægðina. „Fólk er mjög meðvitað um hversu langt er í alla þjónustu í byggð og finnur til öryggis að vita af okkur hér, með þann búnað og þau lyf sem við höfum yfir að ráða.“

Tíminn skiptir máli fyrir þann slasaða
Að mati Einars sýnir reynslan ótvíræða kosti þess að hafa dreifðar bjargir sem víðast um starfssvæði HSU, líkt og bráðaviðbragðið í Öræfum hefur einnig sýnt. „Starfsmenn í fyrsta viðbragði geta gripið inn í, metið þörf á frekari viðbragði og hafið meðferð ef við á. Þótt við flytjum ekki sjúklinga skiptir tíminn máli fyrir þann sem lendir í slysi og bíður aðstoðar.“
Að lokum segir Einar það sé alltaf jafn ánægjulegt að sjá hvernig metnaður fyrir öruggum vinnustað getur skipt sköpum. „Með áhættumati, verkferlum, viðbragðsáætlunum, fræðslu og inngripum hefur hér orðið til vinnusvæði sem telur mörg hundruð ársverk en með fáum atvikum sem geta talist alvarleg. Við vonum að okkur takist að viðhalda þeim árangri.“
Viðbragðið flyst í Sigöldu í vetur
Nú stendur til að færa bráðaviðbragðið í vetur úr Vaðölduveri í Sigöldu. Þar verður þungi framkvæmdanna yfir vetrarmánuðina, á meðan lítið verður um að vera í Vaðöldu. Þannig færist viðbragðið þangað sem þörfin er mest hverju sinni.

