Hellur og lagnir átti eina tilboðið í göngustíga á Geysi

Strokkur. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Hellur og lagnir ehf í Hafnarfirði áttu eina tilboðið í endurbætur á innviðum á hverasvæðinu við Geysi í Haukadal sem Ríkiskaup auglýstu í sumar.

Tilboð Hellur og lagnir hljóðaði upp á 215,7 milljónir króna og var 88% af kostnaðaráætlun Ríkiskaupa, sem er 244,6 milljónir króna.

Verkið á að vinna í haust og er fyrsti áfangi af þremur í talsverðum endurbótum á aðstöðu ferðafólks á hverasvæðinu. Meðal annars á að leggja göngustíga frá nýjum inngangi inn á svæðið, um fjölbreytt hverasvæði að Strokki.

Fyrri greinHSK/Selfoss bikarmeistari 15 ára og yngri
Næsta grein„Ennþá fullt af stig­um til að spila um“