Hellisheiði lokuð til austurs á þriðjudag

Mynd úr safni.

Ef veður leyfir verður unnið að malbiksviðgerðum á Hellisheiði á morgun, þriðjudaginn 8. september.

Af þeim sökum verður þjóðvegurinn lokaður til austurs en framkvæmdirnar munu standa á milli klukkan 14 og 18 (ATH breytta tímasetningu).

Hjáleið verður um Þrengslaveg.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Fyrri greinFjórar nýjar sýningar opna í Listasafni Árnesinga
Næsta greinAldrei neitt vesen á þungarokkurum