Heimkaup um allt land með Dropp

Gréta María, forstjóri Heimkaupa og Hrólfur Andri, framkvæmdastjóri Dropp. Ljósmynd/Birgir Ísleifur

Samningur hefur verið undirritaður milli Heimkaupa og Dropp sem mun senda vörur Heimkaupa til viðskiptavina um allt land. Sendingaþjónusta Dropp er með 90 afhendingastaði hringinn í kringum landið og opnar þetta því möguleika fyrir fólk um allt land að versla beint við Heimkaup og fá afhent samdægurs eða næsta virka dag eftir því hvar á landinu fólk er.

Heimkaup sem í dag rekur eina stærstu vefverslun á Íslandi selur matvörur, snyrtivörur, gæludýrafóður, áfengi, sælgæti, vítamín og allskyns afþreyingavörur. Út október verður frítt að fá sent frá Heimkaup í gegnum Dropp en eftir það kostar hefðbundin sending 790 krónur. Hægt er að panta allar vörur í gegnum Dropp nema kælivörur en áfram verður hægt að panta slíkar vörur beint frá Heimkaup á stórhöfuðborgarsvæðnu og á afhendingastöðvar Pikkoló.

„Við hjá Heimkaupum leggjum ofur áherslu á að létta fólkið lífið með því að gera innkaupin þægileg og skemmtileg hvort sem fólk býr í Hafnafirði, á Höfn eða á Húsavík. Það er því einstaklega ánægjulegt að hefja þetta samstarf með Dropp sem gerir mikliu fleirum kleift að versla hjá okkur á Heimkaup.is og fá afhent ekki seinna en næsta virka dag,“ segir Gréta María Grétarsdóttir, forstjóri Heimkaupa.

„Við hjá Dropp hlökkum til samstarfsins með Heimkaupum og þeirra viðskiptavinum sem nú hafa völ á að nálgast sínar sendingar á 90 afhendingarstöðum um allt land. Hjá Dropp leggjum við áherslu á skjóta þjónustu og að viðskiptavinir geti nálgast sendingar fljótt og örugglega á afhendingarstaði í sínu nágrenni,“ segir Hrólfur Andri Tómasson, framkvæmdastjóri Dropp.

Fyrri greinVestri reyndist sýnd veiði en ekki gefin
Næsta greinVill auðvelda ættliðaskipti bújarða með undanþágu frá erfðafjárskatti