Háskólafélag Suðurlands fékk 1 milljón króna rekstrarstuðning þegar innviðaráðherra úthlutaði á dögunum styrkjum til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni.
Háskólafélagið hlýtur styrkinn vegna Fjölheima á Selfossi, í flokki vinnusóknarsvæða sem telja fleiri en 10 þúsund manns.
Alls var úthlutað 27 milljónum króna til fjórtán verkefna en styrkirnir eru veittir á grundvelli byggðaáætlunar, þar sem markmiðið er að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni.
Vinnustaðaklasi er skilgreindur sem skipulagt og samnýtt vinnurými þar sem fjölbreytt vinnuaðstaða stendur til boða fyrir fleiri en einn vinnustað eða starfsstöðvar vinnustaða.
Alls bárust 19 umsóknir um styrki að upphæð tæpum 69 milljónum en þriggja manna valnefnd var falið að meta allar umsóknir og gerði tillögu til ráðherra um úthlutun styrkja.

