Handtóku mann eftir ölvunarakstur á Vatnajökli

Um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Síðdegis í gær barst lögreglunni á Suðurlandi tilkynning um mann sem æki ölvaður um sprungusvæði við Grímsvötn. Maðurinn var í hóp með öðrum ökumönnum á svæðinu.

Samferðafólk mannsins reyndi án árangurs að fá manninn til að stöðva bifreiðina og óskaði því eftir aðstoð lögreglu við að stöðva akstur mannsins.

„Þar sem um langan veg er að fara á vettvang var ákveðið að óska eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar og sérsveitar til að komast þangað og hélt þyrlan frá Reykjavík um klukkan 20:20 með tvo sérsveitarmenn,“ segir í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi.

Á meðan þyrlan var á leiðinni á vettvang fengust þær upplýsingar af vettvangi að maðurinn hafði skilað sér í skála og að samferðamaður hans hefði tekið við akstri bifreiðarinnar og að hópurinn hefði haldið áfram í Jökulheima.

Þyrlan lenti rétt norðan við Jökulheima um klukkan 21:30 þar sem hópurinn var að koma niður af jöklinum. Hinn ölvaði var handtekinn og fluttur með þyrlu á lögreglustöð. Hann var tekinn í skýrslutöku í dag, ásamt vitnum og var maðurinn laus úr haldi lögreglu síðdegis í dag.

„Litið er á málið alvarlegum augum þar sem hættulegt er að ferðast um jökla og nauðsynlegt að ökumenn séu alsgáðir við aksturinn,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Fyrri greinAlvöru Nashville stemning á Suðurlandi
Næsta greinÓlafur Elí tilnefndur til Íslensku lýðheilsuverðlaunanna