Hagkvæmara að auka starfsemi HSu

Í nýrri skýrslu um sjúkrahús í nágrenni Reykjavíkur kemur fram að ástæða sé til að auka starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands frekar en hitt.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem Guðrún Karlsdóttir, verkfræðingur og sjúkraliði, hefur gert fyrir sveitarfélög og samtök þeirra á þjónustusvæðum kraga­sjúkra­húsanna.

Í skýrslunni kemur fram að fæð­ingar og skurðaðgerðir séu talsvert ódýrari í þeim sjúkrahúsum sem um ræðir, það er í nágrenni Reykjavíkur, en á Landspítalanum. Þetta er þvert á staðhæfingar í skýrslu heilbrigðis­ráðuneytisins frá í desem­ber þar sem fullyrt er að spara megi 1,4 milljarða króna með því að flytja aðgerðirnar til Reykjavíkur.

„Þetta er í samræmi við það sem við höfum verið að halda fram í við­ræðum okkar við ráðuneytið,“ segir Esther Óskarsdóttir staðgengill fram­kvæmdastjóra HSu í samtali við Sunnlenska.

Sjá nánar í Sunnlenska fréttablaðinu PANTA ÁSKRIFT

Fyrri greinSkógarmítlar finnast á Suðurlandi
Næsta greinLögregla viðbúin annasamri helgi