Hæsta tré á Íslandi frá því fyrir ísöld

(F.v.) Hafberg Haraldsson í Lambhaga, Fanney Lárusdóttir, fulltrúi eigenda skógarins, Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands. Ljósmynd/Pétur Halldórsson

Í fyrsta sinn frá því fyrir ísöld stendur nú þrjátíu metra hátt tré á Íslandi. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sló máli á hæsta tré landsins í gær og reyndist það vera 30,15 metrar á hæð.

Forsætisráðherra var boðið til athafnar í skóginum á Kirkjubæjarklaustri í gær þar sem hæsta tré landsins var útnefnt tré ársins af Skógræktarfélagi Íslands. Björn Traustason, fagstjóri landupplýsinga á rannsóknasviði Skógræktarinnar, leiðbeindi Katrínu við þríhyrningsmælingu á trénu sem er sitkagreni gróðursett af fjölskyldunni á Klaustri árið 1949. Mælingu Katrínar var bætt við röð mælinga sem Björn hafði þegar gert á trénu til að fá sem nákvæmasta tölu. Niðurstaðan er sú að fyrsta tréð hefur nú náð þrjátíu metra hæð á Íslandi frá því fyrir ísöld, þegar hér uxu stórvaxnar trjátegundir sem náð gátu margra tuga metra hæð.

Fjöldi fólks var viðstaddur þegar tré ársins var útnefnt, heimafólk og fulltrúar eigenda skógarins, Skógræktarinnar og Skógræktarfélags Íslands. Auk forsætisráðherra fluttu ávörp Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri og Hafberg Þórisson í Lambhaga sem var bakhjarl viðburðarins.

Frá þessu er greint á heimasíðu Skógræktarinnar

Fyrri grein„Ég elska að vera á Selfossi“
Næsta greinNettó opnar eigin netverslun