Gunnlaug ráðin deildarstjóri skólaþjónustu

Ása Valdís Árnadóttir, formaður stjórnar nefndar oddvita/sveitarstjóra byggðasamlagsins, handsalar samkomulagið við Gunnlaugu. Ljósmynd/Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings

Stjórn Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. samþykkti á fundi sínum í vikunni að ráða Gunnlaugu Hartmannsdóttur í starf deildarstjóra skólaþjónustu hjá byggðasamlaginu.

Gengið hefur verið frá samkomulagi við Gunnlaugu um starfið og mun hún hefja störf á næstu vikum. Gunnlaug sem er menntuð í uppeldis- og kennslufræðum ásamt náms- og starfsráðgjöf hefur síðustu ár unnið sem skólastjóri Flóaskóla og kemur því inn í skólaþjónustuna með góða yfirsýn á skólastarfið.

Gunnlaug mun starfa samhliða Anný Ingimarsdóttur, deildarstjóra velferðarþjónustunnar, við mótun á breyttri og betrumbættri þjónustu Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.

Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs. verður með aðsetur í Laugarási í Bláskógabyggð.

Fyrri greinKristján og Glámur sigruðu á vel heppnuðum Vetrarleikum
Næsta greinFrískápur opnar á Selfossi