Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland og Faxaflóa á fimmtudagsmorgun vegna hvassviðris.
Á Suðurlandi gildir viðvörunin frá klukkan 4 í nótt til klukkan 8 í fyrramálið. Gert er ráð fyrir suðaustan 13-20 m/sek og rigningu.
Það verður varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að vera á ferðinni en vindhviður undir Eyjafjöllum og við fjöll gætu náð yfir 30 m/sek.

