Gul viðvörun á þriðjudag

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun sem gildir fyrir Suðurland og Suðausturland frá klukkan 12 til 19 á þriðjudag.

Gert er ráð fyrir austan hvassviðri eða stormi, 15-23 m/sek. Hvassast verður undir Eyjafjöllum og í Mýrdalnum sem og við Öræfajökul.

Vindurinn getur verið varasamur fyrir ökutæki og hættulegur fyrir þau sem taka á sig mikinn vind.

Fyrri greinÞyrla bjargaði ökumanni úr Markarfljóti
Næsta greinUmferð hleypt á nýju Stóru-Laxárbrúna