Guðni útnefndur samborgari ársins

Berglind Kristinsdóttir, formaður markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefndar, afhenti Guðna viðurkenninguna. Ljósmynd/RY

Um síðustu helgi veitti Rangárþing ytra í fyrsta skipti verðlaun til samborgara ársins. Í þetta sinn komu verðlaunin í hlut Guðna Guðmundssonar, bónda á Þverlæk, og var hann útnefndur Samborgari 2023.

Guðni hefur, eins og frægt er orðið, sýnt ómetanlega elju og dugnað við umhverfisvernd ásamt því að stuðla að jákvæðum samfélagsáhrifum með dýrmætum stuðningi sínum við ungmenna- og íþróttastarf í héraði.

Rangárþingi ytra bárust þónokkrar tilnefningar til Samborgara ársins og greinilegt að það eru margir í sveitarfélaginu sem láta gott af sér leiða og auðga samfélagið á einn eða annan hátt.

Fyrri greinÁslaug Dóra til Svíþjóðar
Næsta greinElvar knapi ársins hjá Geysi