Guðbjörg ráðin framkvæmdastjóri Set

Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Eftir áratuga farsælt starf hjá fjölskyldufyrirtækinu Set ehf. á Selfossi hefur Bergsteinn Einarsson, framkvæmdastjóri, ákveðið að stíga til hliðar og einbeita sér að söluferli fyrirtækisins.

Undir forystu Bergsteins hefur velta fyrirtækisins aukist og fyrirtækið fest sig í sessi sem leiðandi aðili í framleiðslu og sölu á lagnaefni á Íslandi, en félagið starfrækir einnig framleiðslufyrirtæki í Þýskalandi og söluskrifstofu í Danmörku.

Stjórn Set ehf. hefur ráðið Guðbjörgu Sæunni Friðriksdóttur sem nýjan framkvæmdastjóra og mun hún hefja störf í sumar. Guðbjörg Sæunn hefur viðamikla reynslu úr atvinnulífinu, síðast sem forstjóri Einingaverksmiðjunar. Hún er menntaður iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands. Bergsteinn mun verða Guðbjörgu til ráðgjafar eftir því sem óskaðverður eftir og mun stýra Set Pipes GmbH í Þýskalandi fram yfir söluferli félagsins ytra.

„Að baki er langur tími uppbyggingar og það hefur verið gefandi og mitt helsta áhugamál að leiða fyrirtækið alla starfsævina. Nú er komið að tímamótum, fjölskyldufyrirtækið komið í söluferli og því réttur tími til að skipta um forystu í brúnni,“ segir Bergsteinn í tilkynningu frá félaginu. Þar þakkar stjórn Set Bergsteini fyrir vel unnin störf og býður Guðbjörgu Sæunni velkomna til starfa.

„Ég hlakka til að taka við framkvæmdastjórarstarfinu hjá Set af Bergsteini eftir farsæla stjórnartíð hans, þar sem fyrirtækið hefur stækkað og styrkst ár eftir ár. Fyrirtækið er mikilvægt í innviðum Íslands og hefur mikil vaxtartækifæri,“ segir segir Guðbjörg Sæunn.

Eins og áður hefur verið greint frá hefur Set ehf verið sett í söluferli. Fyrirtækið velti um 5 milljörðum króna í fyrra en samanlög velta félagsins með framleiðslufyrirtækinu Set Pipes GmbH í Þýskalandi og söluskrifstofu Set Pipes AS í Danmörku var 7,5 milljarðar. Umfangsmikil og fjölbreytt starfsemi á lagnasviði er megin starfsemi Set ehf.

Fyrri greinSviðið er sproti ársins í sunnlenskri ferðaþjónustu
Næsta greinBjarg byggir fimm leiguíbúðir á Flúðum