Guðrún nýr forseti kvenfélagasambandsins

Guðrún Þórðardótt­ir, Kven­fé­lagi Gríms­nes­hrepps, var kosin formaður Kvenfélagasambands Íslands þegar 37. landsþing sambandsins fór fram á Selfossi á dögunum.

Yfirskrift þingsins var Hækkum flugið – kosningaréttur kvenna í eina öld. Gestjafi þings­ins var Sam­band sunn­lenskra kvenna en það er með 26 kven­fé­lög í Árnes- og Rangárvalla­sýsl­um innanborðs. 180 kven­fé­lags­kon­ur af landinu öllu sóttu þingið á Selfossi.

Guðrún var áður varaforseti sambandsins en með henni í nýrri stjórn eru Vil­borg Ei­ríks­dótt­ir Kven­fé­lagi Mos­fells­bæj­ar vara­for­seti, Bryn­dís Birg­is­dótt­ir Kven­fé­lag­inu Ársól á Suður­eyri gjald­keri, Herborg Hjálmarsdóttir Kvenfélaginu Gefn í Garði ritari og Bergþóra Jó­hanns­dótt­ir Kven­fé­lag­inu Hjálp­inni í Eyj­ar­fjarðarsveit meðstjórn­andi. Katrín Haraldsdóttir Kvenfélaginu Einingu á Mýrum og Kristín Árnadóttir Kvenfélaginu Iðunni í Strandasýslu eru í varastjórn.

Sigurlaug Viborg fyrrverandi forseti KÍ var kjörin nýr heiðursfélagi Kvenfélagasambandsins.

Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa var hluti þingsins eftir hádegið á laugardeginum í opinni dagskrá. þangað kom fjöldi gesta og fylgdist með erindum, örfyrirlestrum og pallborðsumræðum tengdum þema þingsins Hækkum flugið.

Þingið sendi frá sér álykt­an­ir, m.a. um átak gegn mat­ar­sóun, kennslu í kynja­fræði, áhersl­ur varðandi komu flótta­fólks til lands­ins, geðheil­brigðismál­ barna og ung­linga, læsi ofl.

Kvenfélagasamband Íslands var stofnað árið 1930 sem sameiningar og samstarfsvettvangur kvenfélaganna í landinu. Innan sambandsins starfa um 170 kvenfélög í sautján héraðs- og svæðasamböndum.

Á þinginu var frumflutt lagið „Sóa“ en lagið fjallar um matarsóun. Hljómsveitin AmabAdamA samdi lagið fyrir Kvenfélagasambandið og má hlusta á það í myndbandinu hér að neðan:

Fyrri greinMcGuire með 31 stig í tapleik
Næsta greinSamstaða um nauðsyn smærri og hagkvæmari íbúða